Um okkur
Að eiga og reka fasteign til útleigu er algengt á Íslandi, slík fjárfesting hefur í langan tíma verið ein sú besta fjárfestingaleið sem hægt er að fara hér á landi.
Til þess að draga úr áhættu á fjárhagstjóni er mikilvægt að hafa góðan og traustan leigjanda og að tryggt sé að allir hlutir og samningar í tengslum við slík viðskipti séu rétt gerðir frá upphafi. Það getur valdið áhyggjum og vandkvæðum að standa í því sjálfur að finna og velja mögulegan leigjanda, gera réttan leigusamning, passa upp á bankaábyrgðir og tímafresti og eiga í stöðugum samskipti við leigjanda, þá komum við til skjalanna sem umboðsmaður leigusala.
Þjónusta
Fjórar leiðir eftir því hversu mikla umsjón þú vilt fela okkur.
Gott að vita
Við tökum ekki við leigugreiðslum og eigandi fasteignar þarf að láta allar greiðslur til sín fara í gegn um eigin bankareikning.
M10 ehf er rekið sem lögmannsstofa og hefur því allar tryggingar sem slíkt fyrirtæki þarf að hafa lögum samkvæmt.