Reykjavíkurhöfn

leigusamningur.is

Þjónusta

Fjórar leiðir eftir því hversu mikla umsjón þú vilt fela okkur — frá fullri umsjón með leigueign til ráðgjafar um einstaka samninga.

Verðskrá fyrir allar leiðirnar er birt neðst á síðunni.

Leið A

Full umsjón með leigueign

  • Við tökum að okkur að auglýsa og finna mögulegan leigjanda. ATH að enginn leigjandi er samþykktur fyrr en eigandi hefur líka samþykkt hann.
  • Gerð rafræns leigusamnings og sjá til þess að samningur sé rétt gerður og settur inn í kerfi Húsnæðis- og Mannvirkjastofnunar ríkisins (HMS) sem er lagaskylda í dag.
  • Fylgt eftir að ábyrgðir fyrir leigusamningnum séu réttar og til staðar.
  • Annast um og taka við öllum skilaboðum milli eiganda fasteignar og leigjanda meðan á leigusamningi stendur.
  • Útbúa áframhaldandi leigusamning, standi vilji leigutaka og leigusala til þess að halda samningi áfram eftir að honum líkur, venjulega eftir eitt ár, eða slíta leigusamningi á tilsettum tíma standi vilji aðila til þess.
  • Ráðgjöf varðandi skattamál og aðra lögfræðilega þætti sem skipta máli varðandi leigusamninginn.

Leið B

Leigusamningur fyrir aðila sem hafa náð saman

  • Útbúa leigusamning fyrir aðila sem þegar hafa náð saman um leigufjárhæð og aðra skilmála leigusamnings. Samskipti við leigutaka eru hjá eiganda fasteignar.

Leið C

Leigusamningur um atvinnuhúsnæði

  • Útbúa leigusamning um atvinnuhúsnæði.

Leið D

Lögfræðileg ráðgjöf

  • Lögfræðileg ráðgjöf varðandi leigusamning.

Verðskrá

Verðlisti

Leið A
Fyrir leið A greiðir leigusali 2/3 af leigu eins mánaðar, þó að lágmarki kr. 200.000 auk vsk, eftir að leigusamningur kemst á. Fyrir áframhaldandi leigusamning sem gerður er við sama leigjanda eftir að fyrsta samningi lýkur greiðir leigusali kr. 100.000 auk vsk.
Leið B
Fyrir leið B greiðir leigusali kr. 50.000 auk vsk.
Leið C
Fyrir leið C greiðir leigusali kr. 70.000 auk vsk.
Leið D
Fyrir leið D Unnið eftir tímagjaldi lögfræðistofunnar.

Viltu koma í viðskipti eða hefur þú spurningar?

Hafðu samband við okkur

Hafa samband